Óskiljanleg ákvörðun að fresta hvalveiðum.

Ég skil ekki ákvörðun Matvælaráðherra Svandísar Svavarsdóttur að fresta hvalveiðum til 31. ágúst næskomandi, það þýðir í raun að það verða engar hvalveiðar í ár.  Ég skil ekki svona stjórnsýslu og framkomu við fólk og fyrirtæki.  Ég hélt að stjórnmálamenn væru í vinnu fyrir fólkið í landinu, til að gæta hagsmuna fólksins.  Að óbreyttu munu […]

Fróðleikur um viðbúnað og viðbrögð við rafmagnseldum í skipum.

  í lok maí sl. var haldin ráðstefna um rafmagnselda á vegum Samgöngustofu. Ráðstefnan tókst vel og samtals voru skráðir 198 þátttakendur bæði á staðnum og í hinum rafræna heimi. Hér fyrir neðan er linkur á upptöku frá fundinum. https://vimeo.com/830182462/aa852b93a7?share=copy Ráðstefna um viðbúnað og viðbrögð við rafmagnseldum í skipum. | Siglingafréttir | Samgöngustofa (samgongustofa.is)   […]

Golfmót Félags skipstjórnarmanna 28. ágúst – SKRÁNING

Golfkapteinn ársins! Golfmót Félags skipstjórnarmanna 2023 fer fram mánudaginn 28. ágúst. Mótið verður á Hlíðarvelli í Mosfellsbæ  og hefst kl. 10:00 Hægt er að skrá sig hér  ATH.  Þetta er lokað mót fyrir félagsmenn í Félagi skipstjórnarmanna, félagsmanni er heimilt að taka með sér einn gest.   Félagsmenn skrá sig í A flokk Gestir í […]

Félag skipstjórnarmanna styrkir Ölduna um eina milljón króna.

Í nýjum kjarasamningi á milli Félags skipstjórnarmanna og SFS sem undirritaður var þann 9. febrúar 2023, er kafli um svokallaða Öryggisnefnd. Nefndin hefur skilgreind verkefni sem tíunduð eru í samningnum, svo sem forvarnir, útbúa fræðsluefni, hvetja sjómenn til þess að skrá og tilkynna frávik í starfsemi, styðja við rannsóknir á slysum og leggja til úrbætur […]

Viðmiðunarverð í gildi frá 2. júní 2023.

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 2. júní 2023, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt: Sl. þorskur helst óbreyttur Ósl. þorskur helst óbreyttur Sl. ýsa lækkar um 7,9% Ósl. ýsa lækkar um 7,9% Karfi helst óbreyttur Ufsi hækkar um 4,0% Þetta á við […]

Uppstillingarnefnd

Samkvæmt 12. grein laga félagsins, ber að kjósa fimm manna uppstillingarnefnd á aðalfundi þess árs sem næst er kosningaári. Sjá nánar hlutverk uppstillingarnefndar í lögum félagsins hér Allir fullgildir félagsmenn geta gefið kost á sér í nefndina Óskað er eftir tilnefningum í nefndina, áhugasamir sendi tölvupóst á skipstjorn@skipstjorn.is  eða hafi samband við undirritaðann. Árni Sverrisson, formaður […]

Ráðstefna um eld í rafhlöðum í skipum

Þriðjudaginn 23. maí næstkomandi munum við á Samgöngustofu halda ráðstefnu um hættu, afleiðingar og viðbrögð við rafmagnseldum um borð í skipum. Undirbúningurinn hefur verið í samvinnu við m.a. Siglingaöryggisstofnun Evrópu (EMSA), Eimskip, DNV, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, Slökkvilið Vestmanneyja, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Húsnæðis-og mannvirkjastofnun, Landhelgisgæslu Íslands, Smyril Line og fjölda annarra aðila á Íslandi. Kveikjan að ráðstefnunni eru áskoranir […]

Aðalfundur Félags skipstjórnarmanna 2. júní 2022

Aðalfundur Félags Skipstjórnarmanna verður haldinn föstudaginn 2. júní 2023 á Grand Hótel í Hvammi, 1.hæð  Kl. 14:00. Dagskrá 1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á næst liðnu ári. 2. Endurskoðaðir reikningar félagsins og sjóða þess lagðir fram og bornir undir atkvæði. 3. Kosin uppstillinganefnd sbr. 12. grein. 5. Kjör fulltrúa félagsins í stjórnir ráð og […]

Félag skipstjórnarmanna notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun notenda vefsins svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.

Vafrakökurnar hér að neðan eru nauðsynlegar svo vefurinn starfi eðlilega.

Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á skipstjorn.is
  • CookieConsent

Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.

  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

Hafna öllum vafrakökum
Samþykkja allar vafrakökur