Orlofsúthlutun í sumar á orlofstíma í bústaði FS ( 3 bústaðir á Laugarvatni, bústaðurinn í Hraunborgum í Grímsnesi og í Úlfsstaðaskógi á Fljótsdalshéraði sem er nýr orlofskostur) og íbúðir FS á Akureyri verða með breyttu sniði í ár. Ákveðið hefur verið að fyrirkomulagið „fyrstur kemur fyrstur fær“ komi í stað úthlutunar samkvæmt punktakerfi sem gilt hefur fram að þessu. Opnað verður fyrir umsóknir á hádegi miðvikudaginn 1. apríl nk. kl. 12:00. Eingöngu er hægt að sækja um rafrænt á orlofshúsasíðu félagsins. Með þessu vonast félagið eftir því að koma til móts við sem flesta en ljóst er að einhverjum líki miður. Þessi aðferð er að verða algengari meðal stéttarfélaga og umsækjendur sjá þá strax hvort þeir nái að bóka á sínum óskatíma og geta þá gert aðrar ráðstafnir ef ekki er laust á þeim tíma sem þeir helst vilja.
Athugið að úthlutun í íbúðir FS á höfuðborgarsvæðinu er óbreytt frá því sem verið hefur.