Steingrímur Sigurgeirsson og Magnús Magnússon eru skipstjórar á Arnarfelli, þeir róa til skiptis, tvo túra um borð og tvo túra í frí.
Arnarfell er 138 metrar á lengd, 21 metrar á breidd, ganghraði um 18,4 hnútar. Skipið er 909 TEU sem þýðir að hægt er að koma fyrir í því 909 stk. af 20 feta gámum.
Í morgun var Steingrímur og áhöfn hans búin að losa skipið, eftir hádegið siglir hann á Grundartanga og lestar járnblendi, á morgun klárar hann að lesta í Reykjavík, þá liggur leiðin til Vestmannaeyja, Immingham, Rotterdam, Cuxhaven, Árósa, Varberg, Færeyja og svo aftur til Reykjavíkur, túrarnir taka um 14 daga.