Nýr kjarasamningur á milli Félags skipstjórnarmanna, Skipstjóra- og stýrimannafélagsins Verðandi í Vestmannaeyjum og Skipstjóra- og stýrimannafélagsins Vísis á Suðurnesjum annars vegar og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi og SA hinsvegar var undirritaður í gærkvöld 9. febrúar 2023.
Samningurinn er um margt tímamótasamningur, meðal annars þá er hann til 10 ára, í honum eru réttindi manna í skiptikerfi tryggð, í honum er trygging á hækkun kaupliða til samræmis við almennar hækkanir kjarasamninga SGS, menn geta valið um leið A sem er að útgerð greiði 3,5% mótframlag í lífeyrissjóð eða leið B að menn fái hærri hlut en nú. Þá er áhersla lögð á aukið gagnsæi og upplýsingagjöf vegna fiskverðsmála. Slóð á kjarsamninginn og kynningu hans er hér fyrir neðan, um að gera að kynna sér hann vel.
Rafræn atkvæðagreiðsla um samninginn hefst þann 17. febrúar næstkomandi og lýkur þann 10. mars kl. 15:00.
Nýr kjarasamningur er hér
Kynning á samningnum er hér
Fyrirhugað er að kynningarfundur verði í næstu viku, nánar auglýst síðar.