Viðmiðunarverð í gildi frá 3. janúar 2023

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 3. janúar 2023, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:

Sl. þorskur hækkar um 4,2%

Ósl. þorskur hækkar um 4,2%

Sl. ýsa lækkar um -8,0%

Ósl. ýsa lækkar um -6,6%

Karfi helst óbreyttur

Ufsi hækkar um 4,5%

Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 3. janúar 2023.  Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. laga nr. 13/1998.