Reglugerð styrktarsjóðs FS
Reglugerð Styrktarsjóðs Félags skipstjórnarmanna
1. gr. Heiti sjóðsins og aðsetur
- 1.1. Sjóðurinn heitir Styrktarsjóður Félags skipstjórnarmanna, skammstafað FS.
- 1.2. Sjóðfélagar eru þeir sem greitt hafa, eða greidd hafa verið fyrir, fullnægjandi iðgjöld til sjóðsins.
- 1.3. Sjóðurinn er eign Félags skipstjórnarmanna.
- 1.4. Heimili sjóðsins og varnarþing er í Reykjavík.
2. gr. Verkefni sjóðsins
Verkefni sjóðsins eru:
- 2.1. Að greiða dagpeninga þeim sjóðfélögum sem missa vinnutekjur sínar vegna eigin veikinda eða slysa.
- 2.2. Að styrkja sjóðfélaga sem missa vinnutekjur sínar vegna sjúkdóms eða slysa maka eða barna innan 18 ára aldurs eftir mati sjóðstjórnar hverju sinni, dagpeningar þá að hámarki í 90 daga.
- 2.3. Að greiða útfararstyrk/dánarbætur vegna andláts sjóðfélaga.
- 2.4. Að styrkja með fjárframlögum sjóðfélaga og hverja þá starfsemi er miðar að endurhæfingu, sérstakri læknismeðferð, slysavörnum eða öðrum sambærilegum verkefnum, eftir ákvörðun sjóðstjórnar hverju sinni.
- 2.5. Að styrkja sjóðfélaga eða aðstandendur þeirra umfram það sem greinir í 2.1.;2.2.; 2.3.;2.4.
3. gr. Tekjur sjóðsins
- 3.1. Tekjur sjóðsins eru iðgjöld skv. kjarasamningum FS
- 3.2. Vaxtatekjur og annar arður.
- 3.3. Gjafir, framlög og styrkir.
- 3.4. Aðrar tekjur.
4. gr. Stjórn og rekstur sjóðsins
- 4.1. Stjórn sjóðsins skal skipuð 3 mönnum kosnum af stjórn FS á fyrsta stjórnarfundi eftir aðalfund ár hvert. Stjórnarfundur telst löglegur sæki a.m.k. 3 stjórnarmenn fundinn.
- 4.2 Stjórn sjóðsins ákveður lágmarks og hámarks upphæð dagpeninga og styrkja.
- 4.3. Stjórnin ber ábyrgð á rekstri og fjárreiðum sjóðsins. Stjórnin skiptir sjálf með sér verkum.
- 4.4. Stjórnun sjóðsins skal vera í samræmi við þau sjónarmið sem gilda skv. almennum stjórnsýslureglum.
- 4.5. Heimilt er að fela skrifstofu FS fjárreiður og umsjón með sjóðnum. Þó skal halda bókhaldi sjóðsins aðskildu frá öðrum fjárreiðum FS.
- 4.6. Ávallt skulu liggja fyrir gögn um rétt sjóðfélaga til greiðslu úr sjóðnum.
- 4.7. Sjóðstjórn setur reglur um eftirlit með greiðslum úr sjóðnum.
- 4.8. Þegar farsóttir geisa getur sjóðstjórnin leyst sjóðinn undan greiðsluskyldum sínum um stundarsakir.
- 4.9. Stjórnin getur ákveðið að fella niður styrki og lækka dagpeninga um stundarsakir ef afkomu sjóðsins virðist hætta búin.
- 4.10. Sjóðnum er heimilt að eiga fasteignir undir starfsemi sína og til hagsbóta fyrir sjóðfélaga, til hvíldar og hressingar.
- 4.11. Til að ná markmiðum sjóðsins er stjórn hans heimilt að kaupa hóptryggingu í þágu sjóðfélaga, sem komi í stað núverandi reglugerðar að hluta eða öllu leyti.
5. gr. Reikningar sjóðsins og endurskoðun
- 5.1. Reikningar sjóðsins skulu endurskoðaðir af löggiltum endurskoðanda eða endurskoðunarfélagi í samræmi við góða endurskoðunarvenju sem í gildi er á hverjum tíma.
- 5.2. Reikningsár sjóðsins er almanaksárið. Reikningar sjóðsins skulu lagðir fram á aðalfundi félagsins áritaðir af löggiltum endurskoðanda.
- 5.3. Í ársreikningi eða skýringum með honum skal sundurliða sérstaklega kostnað vegna hvers og eins bótaflokks skv. gr. 9, 10 og 11.
- 5.4. Fimmta hvert ár skal stjórn sjóðsins fá tryggingafræðing eða löggiltan endurskoðanda til að meta framtíðarstöðu sjúkrasjóðsins með tilliti til þess að hann geti staðið við skuldbindingar sínar samkvæmt reglugerð þessari.
6. gr. Ávöxtun sjóðsins
- 6.1. Heimilt er að ávaxta fé sjóðsins með eftirfarandi hætti:
- 6.1.1. Í ríkisbréfum eða skuldabréfum sem tryggð eru með ábyrgð ríkissjóðs.
- 6.1.2. Í bönkum og sparisjóðum.
- 6.1.3. Í fasteignum tengdum starfsemi sjóðsins.
- 6.1.4. Á annan þann hátt er stjórn sjóðsins metur tryggan.
7. gr. Tilhögun greiðslna úr sjóðnum
- 7.1. Umsóknir um dagpeninga og aðra styrki skulu vera rafrænar eða skriflegar á þar til gerð eyðublöð og þeim skulu fylgja umbeðin gögn sjóðstjórnar hverju sinni.
- 7.2. Dagpeningar eru greiddir út einu sinni í mánuði.
- 7.3. Afgreiðsla sjóðsins skal vera á skrifstofu FS.
- 7.4. Iðgjöld til sjóðsins endurgreiðast ekki.
8. gr. Réttur til dagpeninga, bóta og styrkja
- 8.1. Rétt til styrkja eiga þeir sjóðfélagar sem hafa greitt samfleytt í 6 mánuði í sjóðinn áður en tekjutap eða útgjöld sem leiða til styrkumsóknar eiga sér stað og verið er að greiða af fullnægjandi iðgjöld þegar réttur myndast. Styrkir til hvers sjóðfélaga geta aldrei orðið hærri en sem nemur heildar inngreiðslum vegna viðkomandi í sjóðinn. Upphæð greiddra dagpeninga í veikinda og/eða slysa tilvikum getur þó orðið hærri en heildar inngreiðslur.
- 8.1.1. Þeir sem fara úr iðgjaldasskyldu starfi af öðrum en bótaskyldum ástæðum halda sjóðsréttindum í sex mánuði frá því að starfi lauk.
- 8.2. Sjóðfélagi sem fer í lögbundið fæðingarorlof eða á atvinnuleysisbætur, heldur á meðan réttindum til styrkja og bóta enda hafi viðkomandi ákveðið að viðhalda rétti sínum með greiðslu félagsgjalds og hafi við upphaf fæðingarorlofs eða atvinnuleysis átt fullan rétt til bóta skv. reglum sjóðsins.
- 8.3. Missi sjóðfélagi atvinnuleysisbætur vegna veikinda á hann rétt á bótum sem nemi sömu fjárhæð og atvinnuleysisbæturnar numu yfir sama tímabil, enda átt fullan rétt til bóta skv. reglum sjóðsins við upphaf atvinnuleysis.
- 8.4. Þeir sem greitt hafa til sjóðsins í a.m.k. 60 mánuði og hætta störfum vegna aldurs eða örorku eiga rétt til styrkja næstu 12 mánuði frá síðustu iðgjaldagreiðslu.
9. gr. Greiðsla dagpeninga vegna launataps samkv. 2. gr. lið 2.1. og 2.2.
- 9.1. Rétt til greiðslu dagpeninga eiga þeir sem greidd hafa verið iðgjöld af í a.m.k. 6 undangengna mánuði. Dagpeningar eru aldrei greiddir lengur en sem nemur þeim tíma sem iðgjöld hafa verið greidd til sjóðsins upp að 12 mánuðum.
- 9.2. Dagpeningar í veikinda- og slysaforföllum eru greiddir í allt að 360 daga eða 12 mánuði að loknum greiðslum skv. veikinda- og slysaréttarákvæðum kjarasamninga.
- 9.3. Dagpeningar greiðast aðeins þegar launagreiðslum er lokið og sjóðfélagi hefur ekki tekjur eða aðrar bætur s.s.frá lífeyrisjóði.
- 9.4. Dagpeningar greiðast ekki þegar bótaskylda vegna slyss eða atvinnusjúkdóms fellur á tjónvald og bætur fást greiddar skv. skaðabótalögum úr hendi hans eða á grundvelli ábyrgðartryggingar.
- 9.5. Meti sjóðstjórn svo að dagpeningar skuli greiðast í veikinda- og slysaforföllum barna innan 18 ára og maka greiðast dagpeningar að hámarki í 90 daga frá þeim tíma sem sjóðfélagi hefur verið launalaus í a.m.k. 10 daga. Komi til greiðsluskyldu er greitt frá fyrsta degi launamissisins.
- 9.6. Dagpeningar greiðast ekki, þegar um varanlega örorku eða ellihrumleik er að ræða.
- 9.7. Vegna meðferðar við áfengis og/eða fíkniefnasýki er heimilt að greiða dagpeninga í sama dagafjölda og viðkomandi var í meðferð, enda hafi viðkomandi notið meðferðar á viðurkenndri stofnun.
- 9.8. Heimilt er að fjárhæð dagpeninga taki mið af iðgjaldsprósentu ásamt veikinda- og slysaréttarákvæðum viðkomandi kjarasamnings.
- 9.9. Sjóðstjórn ákveður upphæð dagpeninga.
- 9.10. Samanlagður fjöldi daga samkv. liðum 9.1. til og með 9.7. geta þó aldrei orðið fleiri en 360 dagar (12 mánuðir ). Réttur til dagpeninga endurnýjast þegar greitt hefur verið fullnægjandi iðgjald v/viðkomandi til sjóðsins í 6 mánuði.
- 9.11. Réttur til dagpeninga og annarra greiðslna úr sjóðnum fellur niður sé þeirra ekki vitjað innan 12 mánaða frá því að rétturinn stofnaðist.
10. gr. Greiðsla útfararstyrks/dánarbóta samkvæmt 2. gr. lið 2.3.
- 10.1. Vegna andláts félagsmanns sem var í fullu starfi á kjarasamningssviði félagsins við andlát greiðir félagið útfararstyrk/dánarbætur til eftirlifandi maka og/eða barna undir 18 ára aldri. Skilyrði fyrir fullum styrk er að greitt hafi verið samfleytt af hinum látna til félagsins síðustu 5 ár. Fyrir styttri félagsaðild er greiddur hlutfallslegur styrkur. Ekki er greiddur útfararstyrkur fyrir félagsaðild sem er styttri en 6 mánuðir.
- 10.2. Vegna andláts fyrrverandi sjóðfélaga sem látið hafði af störfum á kjarasamningssviði félagsins vegna aldurs eða örorku er greiddur útfararstyrkur. Skilyrði fyrir útfararstyrk er að greitt hafi verið samfleytt af hinum látna til félagsins síðustu 5 ár fyrir starfslok.
11. gr. Styrkir til sjóðfélaga samkv. gr. 2.gr. lið 2.4.
- 11.1. Endurhæfingar – iðgjöld greidd af sjóðfélaga í a.m.k. 6 undangengna mánuði.
- 11.2. Ferða og dvalar fjarri heimabyggð vegna veikinda – iðgjöld greidd af sjóðfélaga í a.m.k. 6 undangengna mánuði.
- 11.3. Forvarna – iðgjöld greidd af sjóðfélaga í a.m.k. 6 undangengna mánuði.
- 11.4. Kaupa á sjónglerjum, heyrnartækjum og stoðtækjum – iðgjöld greidd af sjóðfélaga í a.m.k. 6 undangengna mánuði.
- 11.5. Skilgreindra læknisaðgerða – iðgjöld greidd af sjóðfélaga í a.m.k. 6 undangengna mánuði.
- 11.6. Tæknifrjóvgana og ættleiðinga – iðgjöld greidd af sjóðfélaga í a.m.k. 6 undangengna mánuði.
Stjórn sjóðsins skal í upphafi hvers árs ákveða skilyrði og fjárhæð styrkjanna og birta á heimasíðu félagsins.
12. gr. Breytingar á reglugerð
- 12.1. Reglugerð þessari getur sjóðstjórn breytt, en leggja skal breytingarnar fyrir stjórn FS til samþykktar eða synjunar á fyrsta stjórnarfundi eftir breytingar.
13. gr. Samþykkt reglugerðarinnar og gildistaka
Þannig samþykkt á fundi stjórnar FS þann 9. janúar 2019.