Um félagið
Félag Skipstjórnarmanna var stofnað í janúar 2004. Félagið varð til með sameiningu þriggja gamalgróinna félaga, þau voru Skipstjóra- og stýrimannafélagið Aldan sem var eitt elsta stéttarfélag landsins stofnað 1893, Skipstjóra- og stýrimannafélag Norðlendinga stofnað 1918, og Félag íslenskra skipstjórnarmanna sem varð til með sameiningu þriggja eldri félaga árið 2000, en á rætur að rekja aftur til ársins 1919. Á síðari stigum varð Skipstjóra- og stýrimannafélagið Sindri aðili að Félagi Skipstjórnarmanna og einnig Skipstjóra- og stýrimannafélagið Bylgjan á vestfjörðum. Þegar Farmanna og Fiskimannasamband Íslands FFSÍ var lagt niður í nóvember 2017, gerðu Skipstjóra- og stýrimannafélögin Verðandi í Vestmannaeyjum og Vísir á Suðurnesjum þjónustusamning við Félag Skipstjórnarmanna.
Félagsmenn eru um 800.
Félagið gerir kjarasamninga fyrir skipstjórnarmenn á:
- Fiskiskipum við SFS Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi.
- Farskipum í millilandasiglingum við Samtök atvinnulífsins.
- Hafnsögubátum og hafnsögumenn við Samband Íslenskra Sveitarfélaga.
- Hafnsögubátum við Faxaflóahafnir.
- Varðskipum, þyrlum og flugvélum Landhelgisgæslunnar við Samninganefnd Ríkisins.
- Hafrannsóknaskipum við Fjármálaráðuneytið.
- Dýpkunarskipum við Björgun hf.
- Ferjum við nokkra rekstraraðila.
Skrifstofa félagsins er að Grensásvegi 13, 108 Reykjavík, og kennitala Félags Skipstjórnarmanna er 680104-2550.
Opnunartími skrifstofu er: Mánudagur til fimmtudags frá kl. 08 – 16, föstudagar kl. 08 – 15
Félagsaðild að Félagi Skipstjórnarmanna hafa skipstjórnarmenn sem hafa menntun sem skipstjórnarmenn.
Félagi Skipstjórnarmanna gefur út tímaritið Víking fjórum sinnum á ári, blaðið fjallar um málefni sjávarútvegs og félagsins sem efst eru á baugi hverju sinni. Félagsmenn fá Víking heimsendan, og geta einnig skoðað blöðin á heimasíðu félagsins.
Sjóðir félagsins standa straum af kostnaði við félagsstarf, skrifstofu og starfsemi á vegum félagsins. Helstu sjóðir eru sjúkrasjóður, orlofssjóður, félagssjóður og starfsmenntasjóður.
Sjúkrasjóður félagsins annast greiðslur til félagsmanna sem lenda í veikindum og slysum.
Sex orlofshús, og átta íbúðir eru í eigu félagsins.
Árni Sverrisson er formaður Félags Skipstjórnarmanna.