Í morgun var undirritaður nýr kjarasamningur Félags skipstjórnarmanna (FS) við Landssamband smábátaeigenda (LS) og Samtök smærri útgerða (SSÚ).
Samningurinn byggir á sambærilegum grunni og kjarasamningar sem gerðir voru við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) árið 2023. Samningurinn verður nú kynntur félagsmönnum og að kynningu lokinni fer fram atkvæðagreiðsla.
Auk Félags skipstjórnarmanna á Sjómannasamband Íslands (SSÍ), Félag vélstjóra- og málmtæknimanna (VM) og Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur (SVG) aðild að samningunum.
Ýttu hér til þess að sjá frétt sem birtist á vef MBL í dag.

