Viðmiðunarverð í gildi frá 5. október 2026

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 5. október 2026, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:

Sl. þorskur helst óbreyttur

Ósl. þorskur helst óbreyttur

Sl. ýsa lækkar um 3,1%

Ósl. ýsa lækkar um 4,1%

Karfi helst óbreyttur

Ufsi lækkar um 1,2%

Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 5. október 2026. Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. laga nr. 13/1998.