Nýtt viðmiðunarverð 7. júní 2017

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FFSÍ, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 7. júní 2017 var ákveðið að lækka viðmiðunarverð skv. kjarasamningum á eftirfarandi tegundum:

Slægður þorskur lækkar um 2,7 %
Óslægður þorskur lækkar um 12 %
Slægð ýsa lækkar um 4,9 %
Karfi lækkar um 3 %

Einnig var ákveðið að hækka óslægða ýsu um 3,4 %.

Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 7. júní 2017.