Viðmiðunarverð í gildi frá 3. september 2026

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 3. september 2026, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:

Sl. þorskur hækkar um 0,3%

Ósl. þorskur hækkar um 2,0%

Sl. ýsa hækkar um 10,0%

Ósl. ýsa hækkar um 6,7%

Karfi hækkar um 2,0%

Ufsi hækkar um 4,2%

Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 3. september 2026. Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. laga nr. 13/1998.