Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 3. júní 2026, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:
Sl. þorskur hækkar um 1,2%
Ósl. þorskur lækkar um -1,9%
Sl. ýsa lækkar um -3,4%
Ósl. ýsa lækkar um -0,9%
Karfi helst óbreyttur
Ufsi hækkar um 6,2%
Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 3. júní 2026. Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. laga nr. 13/1998.

