Viðmiðunarverð í gildi frá 6. janúar 2026

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 6. janúar 2026, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:

Sl. þorskur hækkar um 2,0 %

Ósl. þorskur hækkar um 1,0 %

Sl. ýsa hækkar um 8,0 %

Ósl. ýsa hækkar um 8,0 %

Karfi helst óbreyttur

Ufsi hækkar um 3,0 %

Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 6. janúar 2026. Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. laga nr. 13/1998.