Viðmiðunarverð í gildi frá 3. desember 2024

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 3. desember 2024, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:

Sl. þorskur hækkar um 3,5%

Ósl. þorskur hækkar um 3,5%

Sl. ýsa helst óbreytt

Ósl. ýsa helst óbreytt

Karfi helst óbreyttur

Ufsi helst óbreyttur

Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 3. desember 2024. Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. laga nr. 13/1998.