Golfmót Félags skipstjórnarmanna 28. ágúst

Golfkapteinn ársins!

Golfmót Félags skipstjórnarmanna 2023 fer fram mánudaginn 28. ágúst. Mótið verður á Hlíðarvelli í Mosfellsbæ  og hefst kl. 10:00

Hægt er að skrá sig hér 

ATH.  Þetta er lokað mót fyrir félagsmenn í Félagi skipstjórnarmanna, félagsmanni er heimilt að taka með sér einn gest.

 

Félagsmenn skrá sig í A flokk Gestir í B (gestaflokk)

Leiknar verða 18 holur.  Keppt verður um titilinn Golfkapteinn ársins. keppt er í punktakeppni með hámarks leikforgjöf 28.

Nándaverðlaun á par 3 holum. Verð kr. 3.000.-  pr. mann. Verðlaun eru veitt þremur efstu í flokki skipstjórnarmanna og með sama hætti þremur efstu í hópi gesta. Bikarinn ¨Golfkapteinn ársins¨ er farandgripur þar sem nafn sigurvegara er greipt á gripinn. Sigurvegarinn heldur gripnum þar til keppt verður um hann á ný að ári liðnu. Aðeins skipstjórnarlærðir menn eiga möguleika á að vinna bikarinn. Vinni sami aðilinn bikarinn þrisvar sinnum þá hlýtur sá snillingur bikarinn til eignar. Léttar veitingar í mótslok.