Hin árlega ljósmyndasamkeppni Alþjóðaflutningaverkamannasambandsins stendur nú yfir fyrir árið 2023, henni lýkur 15. ágúst n.k. Sjómenn eru hvattir til að senda inn ljósmyndir sem sýna lífið um borð við ýmsar aðstæður frá degi til dags. Vegleg verðlaun eru í boði fyrir þrjár bestu myndirnar. Hugmyndin með ljósmyndasamkeppni ITF er að vekja athygli á mikilvægum störfum sjómanna um allan heim en ljósmyndir frá keppninni hafa verið sýndar víða á viðburðum, söfnum og galleríum.
Hér fyrir neðan er linkur á skráningu.
https://www.seafarerstrust.org/what-we-do/photo-competition-2023