Viðmiðunarverð í gildi frá 4. júlí 2023

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 4. júlí 2023, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:

Sl. þorskur lækkar um -1,9%

Ósl. þorskur lækkar um -1,9%

Sl. ýsa lækkar um -5,7%

Ósl. ýsa helst óbreytt

Karfi helst óbreyttur

Ufsi helst óbreyttur

Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 4. júlí 2023.  Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. laga nr. 13/1998.