Viðmiðunarverð í gildi frá 2. febrúar 2023

Fiskur og franskar - Þorskur

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 2. febrúar 2023, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:

Sl. þorskur helst óbreyttur.

Ósl. þorskur helst óbreyttur

Sl. ýsa hækkar um  5,0%

Ósl. ýsa hækkar um  5,0%

Karfi hækkar um 2,0%

Ufsi hækkar um 4,1%

Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 2. febrúar 2023.  Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. laga nr. 13/1998.