Viðmiðunarverð í gildi frá 5. apríl 2022

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 5. apríl 2022, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:

Sl. þorskur hækkar um 4%

Ósl. þorskur hækkar um 4%

Sl. ýsa hækkar um 5%

Ósl. ýsa hækkar um  5%

Ufsi breytist ekki

Karfi breytist ekki

Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 5. apríl. 2022. Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. laga nr. 13/1998.