Viðmiðunarverð í gildi frá 2. mars 2022

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 2. mars 2022, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:

Sl. þorskur lækkar um 4%

Ósl. þorskur lækkar um 4%

Sl. ýsa breytist ekki

Ósl. ýsa breytist ekki

Ufsi breytist ekki

Karfi breytist ekki

Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 2. mars 2022. Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. laga nr. 13/1998.