Golfmót Félags skiptjórnarmanna 2021, verður 30. ágúst.

                              Golfkapteinn ársins

 

                             Golfmót FS fer fram mánudaginn 30. ágúst. Mótið verður á Grafarholtsvelli og hefst kl. 10:00

Leiknar verða 18 holur.  Mótið er einungis fyrir félagsmenn.  Félagsmönnum er heimilt að taka með sér einn gest.  Keppt verður um titilinn Golfkapteinn ársins.  Punktakeppni.  Nándaverðlaun á par 3 holu.

Verð kr. 3.000.- pr. mann.

Verðlaun eru veitt þremur efstu í flokki skipstjórnarmanna og með sama hætti þremur efstu í hópi gesta.

Bikarinn „Golfkapteinn ársins“ er farandgripur þar sem nafn sigurvegara er greipt á gripinn.  Sigurvegarinn heldur gripnum þar til keppt verður um hann á ný að ári liðnu.  Aðeins skipstjórnarlærðir menn eiga möguleika á að vinna bikarinn. Vinni sami aðilinn bikarinn þrisvar sinnum þá hlýtur sá snillingur bikarinn til eignar.

Mótið verður sett inn á golfboxið til skráningar miðvikudaginn 28. Júlí ásamt leiðbeiningum.

         Léttar veitingar í mótslok

Golfdeild FS