Nýtt viðmiðunarverð 3. júní 2021

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 3. júní 2021, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:

Sl. þorskur hækkar um 2,0%

Ósl. þorskur helst óbreyttur

Sl. ýsa hækkar um 1,4%

Ósl. ýsa hækkar um 2,6%

Karfi lækkar um -5,0%

Ufsi lækkar um -1,3%

Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 3. júní 2021.