Björgun ehf. stýrimaður

STÝRIMAÐUR

Björgun leitar að reyndum stýrimanni á dæluskipið Sóley, en Sóley er notuð til að afla hráefnis til vinnslu í landi, til dýpkunar og landgerðar.

Björgun er rótgróið fyrirtæki sem skipar öflugum hópi starfsmanna við útgerð og efnisvinnslu. Hjá Björgun sameinast áratuga þekking og reynsla á efnisvinnslu og lausnum, lögð er áhersla á vinnubrögð þar sem öryggi og umhverfismál eru höfð að leiðarljósi.

Menntunar- og hæfniskröfur
Stýrimaður þarf að hafa þekkingu og færni til að stjórna Sóley og geta tekið við yfirstjórn skips sem staðgengill skipstjóra
Góð íslensku og/eða enskukunnátta
Sjálfstæð og vönduð vinnubrögð
Þekking á sanddælingu er kostur