Á dögunum færðum við Birgi Sigurjónssyni skipstjóra blómvönd og kveðjugjöf í tilefni þess að hann var að hætta sem umsjónarmaður íbúða félagsins. Birgir var ráðinn umsjónarmaður árið 2007, hann hefur sinnt því mikilvæga starfi með sóma auk þess sem hann tók að sér smærri viðhaldsverkefni á íbúðum og sumarhúsum félagsins. Við þökkum Birgi kærlega fyrir samstarfið í gegnum árin og færum honum og fjölskyldu hans kærar kveðjur og óskum þeim velfarnaðar. Birgir hafði á orði að með hækkandi sól hlakkaði hann til að geta einbeitt sér að silungsveiði og golfi. Það eru forréttindi að verða 75 ára gamall á næstunni og hafa það hugarfar sem Birgir hefur.