Nýtt viðmiðunarverð 2. desember 2020

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 2. desember 2020, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:

Slægður þorskur hækkar um 2,0%

Óslægður þorskur hækkar um 4,0%

Slægð ýsa hækkar um 5,3%

Óslægð ýsa hækkar um 2,0%

Slægður og óslægður ufsi helst óbreyttur

Karfi helst óbreyttur