Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 3. nóvember 2020, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:
Slægður þorskur helst óbreyttur
Óslægður þorskur hækkar um 8,0%
Slægð ýsa lækkar um 2,6%
Óslægð ýsa lækkar um 5,3%
Slægður og óslægður ufsi hækkar um 4,0%
Karfi helst óbreyttur
Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 3. nóvember 2020.