Nýtt viðmiðunarverð 2. október

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 2. október 2020, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:

Slægður þorskur hækkar um 12,0%

Óslægður þorskur hækkar um 12,0%

Slægð ýsa hækkar um 3,5%

 

Verð á óslægðri ýsu, karfa, slægðum og óslægðum ufsa haldast óbreytt.

Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 2. október 2020.