Nýtt viðmiðunarverð 2. september 2020

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 2. september 2020, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:

Óslægður þorskur hækkar um 3,0%

Slægð ýsa hækkar um 5,4%

 

Verð á slægðum þorski, óslægðri ýsu, karfa, slægðum og óslægðum ufsa haldast óbreytt.

Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 2. september 2020.