Nýtt viðmiðunarverð 3.mars 2020

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 3.mars 2020, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:

Slægður þorskur hækkar um 1,0%

Óslægður þorskur verður óbreyttur

Slægð og óslægð ýsa hækkar um 7,0%

Slægður og óslægður ufsi er óbreyttur

Karfi hækkar um 2,0%