Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 6.ágúst 2019, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:
Óslægður þorskur hækkar um 5%
Óslægð ýsa hækkar um 5%
Ufsi hækkar um 5%
Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingar taka gildi 6.ágúst 2019.
Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1.gr.l.nr. 13/1998.