Nýtt viðmiðunarverð 5. febrúar 2018

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FFSÍ, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 5. febrúar 2018, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:

Slægður þorskur hækkar um 2,1% Óslægður þorskur lækkar um -3,5%Slægð ýsa lækkar um -0,9%

Óslægð ýsa hækkar um 1,3%

Karfi hækkar um 3%

Ufsi helst óbreyttur

Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 5. febrúar 2018.